Velkomin :)
18.09.2007 17:24:46 / gully

litli busi

bara láta vita af mér hérna ;)

Við sjöfn erum semsagt fluttar á heimavistina í 2218 8) Búnar að koma okkur þokkalega vel fyrir og svona :)

MA byrjaði í gær, við erum í 1.E sem er fínn bekkur bara ;) eigum samt eftir að kynnast fólkinu aðeins betur

Busunin byrjaði í dag, ekkert of hræðilegt en þetta verður víst miklu verra á morgunn.. en svo annað kvöld er bara ballið og þá erum við ekki lengur litlir busar :) versta við daginn í dag var að vera öll troðin ofan í kvosina og látin setjast og allir voru bara ofan á hvor öðrum og það var ógeðslega heitt! og þetta á að gera aftur á morgunn!

Fórum á vacancy eða eitthvað í gærkvöldi í bíó og ojj þetta er ógeðsleg mynd! maður er bara svo hræddur að manni langar ekki að vera þarna! samt góð mynd sko.. svona eftir á ;) 

hef ekkert meira að segja.... er loksins komin með netið í tölvuna hérna á vistinni:D

-gullý

 

 

 


» 5 hafa sagt sína skoðun

31.08.2007 16:06:38 / gully

blogggg

hallóhalló.. ég sökka í að blogga, gleymi alltaf hvað ég ætla að skrifa þegar ég byrja =/

Vikuna eftr fiskidaginn var ég bara að vinna og á föstudeginum skrapp ég svo suður á menningarnótt :)

Reyndi á fullu að redda mér einhverstaðar fari og á endanum fékk ég far með Alla, Siguringa og Bjössa á flottri lödu :) Sjöfn fékk far hjá einhverjum ólafsfirðingum hehe :p

Klukkan hálf eitt eða eitthvað um nóttina vorum við loksins komin til reykjavíkur og þá náðu Herdís og Sjöfn í mig og við fórum bara aðeins að rúnta, hitti Davíð, fengum okkur að borða og fórum heim að sofa. Ég og Sjöfn gistum hjá Herdísi og Aroni.. takk fyrir mig ;*

Á laugardeginum fórum við aðeins að labba í bænum og fórum svo heim og horfðum á simpson, sumir sofnuðu hehe :) Um kvöldið fórum við aftur niðrí bæ og fórum svo heim að sofa klukkan hálf fjögur held ég. FULLT af fólki þarna, vá!

Á sunnudeginum vaknaði Sjöfn við símann og þá var hún að fara leggja af stað heim klukkan eitt eða eitthvað, ég fór þá bara með Herdísi í Kringluna og keypti mér skólaföt hehe :) Svo skutlaði hún mér á flugvöllinn og ég tók bara næsta hoppflug til akureyrar og fór í mat til pabba með evu :)

Eva búin að kaupa sér boru .. gellubíll sko :)

Á fimmtudeginum fór ég með Jenný, Evu og Alexöndru í gelluferð til reykjavíkur hehe :)

 

 

Lögðum af stað um þrjú og þá var Jenný búin að smyrja nesti og gera kakó haha.. stoppuðum svo í húnaveri og borðuðum nestið

 

 

Ferðin gekk vel ótrúlega vel, vorum komin til reykjavíkur rétt eftir kvöldmat, fórum þá bara beint til ömmu þar sem við gistum og þá var hún búin að panta dominos pizzu handa okkur :haha: bílstjórinn og leiðbeinandinn frammí voru alveg að meika það í að rata 8)
Komum okkur ágætlega fyrir á neðri hæðinni þar sem var freeekar þröngt og fórum svo bara að sofa :)
Föstudagurinn fór í það að versla, byrjuðum í smáralind og fórum svo í kringluna.
Um kvöldið hittum við Sæunni og borðuðum með henni á einhverjum stað sem ég man ekki hvað heitir. Eftir matinn fórum við bara að rúnta og fengum okkur McFlurry eða Makkflörríbí haha :)
Á laugardeginum fórum við á Laugarveginn, versluðum smá og fórum á kaffihús, kíktum svo í smáralind minnir mig og um kvöldið fórum við svo út að borða á Ítalíu þar sem við áttum pantað borð :) Geðveikur maturinn þarna!
Andri og Sæunn komu með okkur að borða þannig að eftir það þurftum við að vera á tveimur bílum og fórum þá og fengum okkur ís. Ég fékk mér trúðaís og ég fékk að velja hvernig hann liti út :D Hinir fengu sér bara skyrboost eða eitthvað.
Um kvöldið horfðum við á mynd og eftir það fórum við bara heim að sofa.
Á sunnudeginum fórum við í Ikea þar sem sumir misstu sig haha :) Bíllinn varð straumlaus á planinu en við fengum einhvern kall til að gefa okkur straum ;) Man ekki hvað við gerðum meira, var ekkert með myndavélina um daginn.
Um kvöldið fórum við að rúnta og kíktum aðeins í Nauthólsvík og tókum nokkrar myndir hehe! kíktum svo í perluna, keyrðum alltaf göturnar á álftanesi og kíktum í kaffi til forsetans, eða svona næstum því ;)
Á mánudagsmorguninn lögðum við snemma af stað heim og vorum komin heim á fínum tíma með vel fullan bíl af dóti
Ætla að taka það fram að við villtumst ALDREI, þurftum reyndar að taka nokkrar u-beygjur ;) Klesstum bílinn aldrei þó við höfum verið pínu nálægt því nokkrum sinnum haha ;)
Takk fyrir ferðina stelpur ;);*
-gullý sem er að byrja í skólanum eftir tvær vikur!
er komin með myspace .. slóðin á það er www.myspace.com/gullyy ;) endilega adda mér

» 5 hafa sagt sína skoðun

12.08.2007 20:54:55 / gully

sumarið á enda? neeeii

Fiskidagshelgin er búin! og hún var reyndar ekkert nema snilld :D Fullt af fólki í bænum og tjaldstæðið var næstum orðið fullt á þriðjudeginum!

Á föstudeginum vorum við með fiskisúpu en bara samt fyrir ættingja og vini en það reyndar breyttist seinna um kvöldið og súpan var ekki lengi að klárast. Brjáluð stemning heima og flestir komnir í trylltann dans á stofugólfinu meðan svenni frændi á harmonikkunni, rúnar á gítarnum og júlli á skeiðunum tóku lagið ásamt fleirum sem börðu á einhver hljóðfæri!

Ég hitti fullt af fólki útum allan bæ og kvöldið fór bara í það að labba um bæjinn, vera með vinunum og spjalla við fólk :) Einhver smá slagsmálavesen en án mikilla meiðsla ;) Slagsmálin eru víst bara partur af þessu öllu saman :$ Klukkan var rúmlega fimm þegar ég komst í rúmið en svefninn sem ég fékk var ekkert of mikill :(

Á laugardeginum átti ég að vakna klukkan átta en ég svaf yfir mig og vaknaði klukkan hálf tíu, dreif mig í sturtu og fór niðrá svæði að setja upp grillið og var svo að hella í glös til tólf! Fór þá bara aðeins heim og fór svo aftur niðrá svæði rétt fyrir klukkan eitt.. alveg ágætlega mikið af fólki þarna, 40 þúsund manns eða? Fór að dreifa bæklingum með sjöfn klukkan tvö til þrjú, skemmtum okkur ágætlega við það haha! Fórum svo aftur niðrá svæði og hittum siggu, kristján, sigga, snorra og einhverja fleiri :)

Á leiðinni heim var ég stoppuð af dagný, sigga og krissa og þau buðu mér á rúntinn og ég tók nokkra hringi með þeim, fór svo bara heim og ég og unnur lögðum okkur í tvo tíma!

Kvöldið var svipað og fyrra kvöld nema bara skemmtilegra :D Fórum í trylltann dans í bárubúð þar sem var TROÐIÐ af fólki! svo fór kvöldið bara mest í að labba milli bakarísins og bárubúðar þar sem allt fólkið var :) Ég var komin heim að sofa rúmlega fimm og náði alveg 9 klukkutíma svefni :haha: það var ekki slæmt!

Dagurinn er búinn að fara í það að kveðja gestina og bara slappa af! ætla svo að setja nokkrar myndir á síðuna á eftir :)

Skólinn byrjar eftir mánuð :D Ég og sjöfn verðum í fyrsta E ! förstíþörstí hahaha

Byrja að vinna aftur á þriðjudaginn, fer svo suður með evu, jenný og alexöndru einhverja helgi í ágúst, kemur í ljós hvenar stelpurnar fá frí!

Missti mig alveg í skrifunum haha :) takk fyrir helgina fólk!

-gullý

 


» 3 hafa sagt sína skoðun

06.08.2007 17:50:40 / gully

Geeðveik helgi :)

Ætla bara að henda inn stuttri færslu, gleymi alltaf að blogga hérna :|

Eins og landsmenn vita þá var verslunarmannahelgin að enda og allavega mér fannst ótrúlega gaman :D Nenni ekki að segja frá hverju smáatriði en það var farið á pál óskar ballið sem var snilld og svo no request sem var allt í lagi, of mikið techno kannski :S Svo bara eitthvað á röltinu niðrí bæ og hitta fólk :) Þekkti reyndar óvenju fáa þetta árið.. en þá kynnist maður bara nýju fólki í staðinn =)

Sumarið er búið að vera ótrúlega fljótt að líða, reyndar alveg rúmur mánuður í að skólinn byrji! Þessi vika er þriðja frí vikan mín en ég fór í hestaferð í 10 daga eitthvert á austurland sem var ótrúlega gaman :) Núna er bara vika í að ég byrji aftur að vinna og ég ætla að reyna að vera ótrúlega dugleg að vinna svo ég eigi einhvern pening í vetur!

FISKIDAGURINN MIKLI er eftir 5 daga! Fólkið fer að koma í bæjinn eftir svona þrjá eða fjóra daga og vá hvað ég hlakka til! Klárlega hápunktur sumarsins :D Ég verð reyndar að vinna á fiskidaginn í grillinu frá átta um morguninn til tólf á hádegi þannig að það verður ekki mikið sofið aðfaranótt laugardags :( eeen eins og vitur maður sagði; maður sefur nóg þegar maður er dauður ;)

Vonandi hafiði skemmt ykkur fallega um verslunarmannahelgina og ekki gert neitt ljótt af ykkur ;) takk fyrir helgina allir :)

-gullý

btw ég var ekki með myndavélina þannig að það koma engar myndir á síðuna frá helginni :|

ein með öllu


» 5 hafa sagt sína skoðun

22.07.2007 18:42:25 / gully

hallóhalló

var að láta nýjar myndir inná síðuna

  • árskógströnd
  • grilla pylsur

nenni ekki að blogga

-gullý ;)


» 2 hafa sagt sína skoðun

13.07.2007 20:17:21 / gully

ég á engann spandexgalla!!!

Ég held að þetta sé fyndnasta auglýsing sem ég hef heyrt.. get ekki lýst henni, verðið bara að heyra hana haha! Hló svo mikið þegar hún kom í morgunn að ég slefaði næstum því á fiskinn!

eeeeeeeeeen allavega.... Dagný, Sjöfn, Anna, Kristján og fleiri fóru til fokking danmerkur í æskulýðsferð á mánudaginn, meðan ég var að vinna ;) Fiskurinn er sko miiiiklu skemmtilegri en Danmörk.. piff! reyndar ekki hah!

Vona að þau skemmti sér bara ótrúlega vel þarna úti og komi svo heim með einhverjar kreisí sögur úr ferðinni handa mér :haha:

Sumarið er að verða búið og veðrið er búið að vera ömurlegt eiginlega allan tíman :( eins gott að það verði 20 stiga hiti, logn og engin rigning á fiskidaginn :D sem er btw eftir 4 vikur?

Íslandsmótið á Dalvík byrjaði í gær klukkan átta um morguninn.. fullt af fólki í bænum á amerísku jeppunum sínum með risastóru hestakerrurnar sínar. Fór og horfði á skeiðið í gær og svo bara heim.

Var að vinna í morgunn og bara 5 dagar eftir í vinnunni fyrir frí :D Fór svo og vann í eldhúsinu í hesthúsinu og fór með starfsmannapassann utan um hálsinn að gefa dómurunum kaffi. Fer svo aftur að vinna á morgunn í eldhúsinu frá fjögur til sex og síðan verð ég í miðasölunni fyrir skemmtunina um kvöldið.. held að það verði reyndar bara snilld :D

Núna er ég bara að fara aftur að horfa á mótið, B-úrslitin í tölti og 100 metra skeiðið. Eftir það verður einhver svakaleg kráarstemning þarna eða svona bjórkvöld ;)

Ég á eftir að setja myndirnar á síðuna sem við tókum þegar ég, sjöfn og dagný vorum hjá Sigga á árskógströnd! skemmtilegar myndir haha :) er bara aaaalls ekki að nenna setja þær inná :S það kemur seinna

Veit reyndar ekki alveg afhverju ég er að blogga, allir þeir sem hugsanlega myndu lesa bloggið eru í útlöndum haha :) Kannski þau kommenti ef þau komast á netið einhverstaðar þarna úti ;)

-gullý

 http://hringur.de/Islandsmot/Islandsmot%20forsida.htm 

 


» 2 hafa sagt sína skoðun

25.06.2007 17:13:21 / gully

ég hata snapfish

jaaá ég hata snapfish... allar nýjustu myndirnar sem ég setti inná þessa ógeðslegu síðu duttu út og ég nenni ekki að gera nýtt myndapláss!

þetta sökkar!


» 4 hafa sagt sína skoðun

17.06.2007 19:12:12 / gully

komið í kristjáns bakarí.. skonsur skonsur

Geggjuð helgi! Bíladagar á Akureyri og fuuuullt af fólki :)

Ég og Sjöfn skelltum okkur til akureyrar á föstudaginn, pöntuðum okkur pizzu og græjuðum okkur eitthvað og fórum svo bara niðrí bæ klukkan hálf ellefu eða eitthvað.

Fórum á burnoutið og það var hræðilegt.. fengum ógeðslega mikinn reyk framan í okkur og það var vond lykt! Vorum ekkert alveg að fatta útá hvað þetta gengi

Fórum svo niðrí bæ og hittum evu og vinkonur hennar og arnar og stefán og löbbuðum bara með þeim

Vorum svo bara eitthvað á röltinu niðrí bæ, hittum fullt af fólki :) Helgi Pétur frændi var þarna hress eins og alltaf .. lyfti mér upp og dansaði helling með mig haha, gaman að hitta hann sko :) Fórum svo bara heim rúmlega þrú að sofa... þreyttar eftir að labba upp fokking brekkuna haha!

Vöknuðum um hádegi á laugardeginum og skelltum okkur í sund og vorum alveg í þrjá tíma þar, sólbaði og svona :) Komum svo heim og fengum okkur að borða og pabbi tók myndir af okkur í garðinum haha.. það var fyndið

Fórum aðeins niðrí bæ og hittum þar arnar, fórum svo heim og pabbi grillaði kjúkling og pylsur og eitthvað í garðinum og við borðuðum á bleikum pikknikk dúk haha :) Gerði heiðarlega tilraun til að klifra uppí tré og ná í badmington fokkuna en þá datt hún niður hah!

Dagný Beikon (haha) kom svo til okkar og við fórum svo niðrí bæ og hittum þar fullt af fólki. Vorum bara eitthvað á röltinu að spjalla og svona..

Arnar fór svo heim, og síðan Dagný. Hittum Öru og löbbuðum aðeins með henni og hittum fleira fólk :) Klukkan svona fjögur vorum bara ég og sjöfn eftir og ætluðum alltaf að fara heim útaf kulda og þörf til að pissa en þá hittum við alltaf fleiri og fleiri... vorum svo komnar heim klukkan fimm og fórum bara að sofa :)

Yndisleg helgi og margt eftirminnilegt sem gerðist haha...

  • segðu honum að tungla!
  • kristjáns bakarí, komið í kristjáns bakarí, skonsur skonsur
  • I'm a Tiger and a lion wraawww
  • kyyyysstu mig
  • Dagný beikon hahah
  • hæ ég er jói i'm twenty seven.. þetta eru strákarnir mínir
  • áfram koma svo.. fimmhundruð kall ! þetta er nýtt hjól
  • geeeeeeeeeeeeerðu það má ég gista

 

Fullt af nýjum myndum á síðunni! stendur ::nýtt fyrir aftan :) (myndir 2007)

 Takk fyrir helgina allir :)

 -Gullý


» 3 hafa sagt sína skoðun

09.06.2007 00:44:48 / gully

fiskur, fiskur, fiskur og einkunnir

Vinn' í fiski. verbúðalíf, hjartað vantar varnarhlíf (8)

Vinnan gengur sinn vanagang.. vakna þreytt á morgnanna og kem þreytt heim úr vinnunni!

Í morgunn átti sér reyndar stað sérstakt atvik hjá tveimur pólverjakonum í vinnunni. Þær voru saman á lausfrystinum og svo fóru þær að rífast og kalla hvor aðra hóru og mellu og eitthvað (á pólsku samt) og svo fóru þær að slá hvor aðra með fisknum! 8| speeeees!

Ég samt sneri bakinu í þær þannig að ég sá þetta ekki, sem er bömmer... haha

Við fengum einkunnirnar á þriðjudagskvöldið og ég er bara nokkuð sátt með mínar :D Svo er það bara að vona að einkunnirnar séu nóg til að komast á náttúrufræðibraut í MA ;)

Stefanía kom með bekknum sínum til dalvíkur í skólaferðalag. Ótrúlega gaman að hitta hana :) það var orðið of langt síðan síðast

Vorum annars að panta okkur myndavél sem við erum einmitt að fara ná í á Akureyri á morgun :) Eins gott að þetta sé almennileg vél því hún kostaði nú alveg ágætis pening!

Canon EOS 400D heitir hún og hún er 10 milljón megapixlar :D ekki slæmt! Fáum svo tvær linsur með + flass

Ég er samt búin að vera ógeðlega lasin í vikunni. Er með eitt mesta kvef sem ég hef fengið og plús sýkingu í augunum! Er búin að reyna dæla í mig vítamínum og rugli til að láta þetta ógeð fara ;)

hehe þetta er orðið pínu langt.. ætla bara að fara sofa, er að leka niður úr þreytu! Er að passa hérna heima og við Sjöfn, Dagný, Siggi, Daníel.H, Anna, Daníel.A og Arnar horfðum á perfume. Fólk misjafnlega mikið að horfa hehe.. mér fannst þetta samt mjög góð mynd ;)

-gullý

 

ps komið meira nýtt í "framundan"


» 4 hafa sagt sína skoðun

02.06.2007 17:19:23 / gully

komin heim =)

Í gærkvöldi komum við heim úr yyyndislegu skólaferðalagi! vá það var gaman :D

Eins og venjulega var ég ekkert mjög dugleg á myndavélinni... tók kannski sjö myndir hah

Mættum í skólan á mánudaginn klukkan tólf og komum svo heim aftur í gærkvöldi :)

Nenni ekki að skrifa einhverja heavy ferðasögu en við gerðum fuuullt skemmtilegt :D

  • Fórum á skotsvæðið þar sem við skutum úr byssum og bogum.
  • Fórum í hellaskoðun og kristján bjargaði dagný úr lífsháska.
  • Fórum í keilu, bíó og sund
  • Skoðuðum veiðisafnið
  • og líka draugasetrið
  • Fórum í þyrlu!
  • Fórum í bláa lónið
  • Fórum í adrenalíngarðinn .. ég fór í allt :D
  • Fórum í paintball, ég fékk marblett
  • Fórum í leikhús á söngleikinn Gretti
  • Skoðuðum líka allt borgarleikhúsið
  • Fórum í riverrafting
  • og svo fullt fleira :D

Ekkert smá gaman allt saman, vorum reyndar komin með smá ógeð á því að sitja í rútu!

10. bekkur er semsagt bara búinn, skólaslitin á þriðjudaginn og þá fáum við einkunnirnar og þannig :)

stal nokkrum myndum af sjöfn:

dagný, sjöfn og ég í hellaskoðun                            besti 10. bekkur í heimi :)     
alveg eins og fiskidagsmyndin :D                              áður en við fórum í þyrluna :)

-gullý


» 5 hafa sagt sína skoðun

26.05.2007 23:26:06 / gully

bleller

bleller er asnalegt orð.. hvað þýðir það og hver fann uppá því?

Ekkert ægilega mikið að frétta héðan sko..

Starfskynning á miðvikudag og fimmtudag hjá mér, fyrri daginn fór ég á krílakot með sjöfn, arnari og ingibjörgu og það var sveitaferð :) á alveg framtíðina fyrir mér sem leikskólakennari.. samt ekki, of mikil þolinmæði hehe :haha:

og svo á fimmtudaginn fór ég á Dalbæ með sjöfn og siggu.. vorum bara að hjálpa með þrif og gefa fólkinu mat og svona :) Gaman að sjá hvernig þetta allt er þarna

Er svo bara eitthvað búin að vera vinna og reyni svo að skella mér á hestbak þegar ég get :)

Helgin er nú bara róleg, er á akureyri núna hjá pabba.. þarf svo að fara heim á morgunn til að pakka og gera til fyrir SKÓLAFERÐALAGIÐ!! :D:D:D

HVAÐ er samt meira PIRRANDI en svona níu ára strákar sem sitja fyrir aftan mann í bíó og eru að sparka í sætin, setja fæturnar uppá, henda nammi og poppi í mann og hlæja endalaust af einhverju sem er ekki fyndið!?!?

Ég og Dagný vorum einmitt í bíó áðan með Sigrúnu og Jóa á Pirates of the Caribbean 3 og þá var einmitt lýsandi dæmi um svona pirrandi stráka fyrir aftan okkur! Vá ég var svo pirruð á þeim, var alltaf að reyna gefa þeim evil-eyes og sussa á þá en þeir héldu bara áfram! Svona pirrandi fólk á ekki að fá leyfi til þess að fara í bíó ;)

Sumarið er að koma, samt sökkar veðrið!


» 6 hafa sagt sína skoðun

19.05.2007 13:20:33 / gully

Þú ert svo heit að teygjan í nærbuxunum mínum er að bráðna

Haaalló :)

 Skyndihjálpin & Ökuskólinn er búið! Á mánudaginn er svo einhver fyrirlestur og svo er bara aðeins meira en vika í skólaferðalagið!!! :D :D

 Hljómsveitin Outloud var að spila á lokaballinu hérna á Dalvík í gærkvöldi! Ógeðslega gaman inná milli en stundum var ég bara ógeðslega þreytt og heitt og nennti ekki að vera þarna. Hress hljómsveit sko :)

Núna er ömurlegt veður.. bara rigning og ógeðslega kalt. Ég vill sumarið!!

 

-gullý

Rúmlega þrjátíu dagar í að Unnur komi heim!!! 8)


» 3 hafa sagt sína skoðun

15.05.2007 15:23:44 / gully

skyndihjálp og ökukennsla

Núna eru ekkert frábærir dagar í skólanum, erum í ökukennslu og skyndihjálp! Alveg ágætt svosem eeeen það er dolldið þreytandi að sitja í sjö til átta klukkutíma og horfa á slide show :$

Ég og Sjöfn vorum ekkert smá duglegar í gærkvöldi og settum upp nýja trampolínið =) Ekkert smá stollt af okkur sko! Myndir frá því hérna til hliðar :haha:

Styttist í skólaferðalagið og styttist í að allt verði bara búið! Það verður fínt, samt á maður örugglega eftir að sakna einhvers :$

Lokaballið í pleizinu á föstudaginn! Hljómsveitin Outloud verður á staðnum og akureyringum, ólafsfirðingum, siglfirðingum og fleirum er boðið að koma. Aðgangseyri er 1000 kr!

ALLIR AÐ MÆTA :)

-gullý


» 6 hafa sagt sína skoðun

11.05.2007 19:54:13 / gully

bara smáá

Hef ekkert heavy mikið að segja.. langaði bara að blogga :haha: Tölvan var að koma eftir tveggja daga fjarveru og ég gæti ekki verið ánægðari!! Komin með helmingi meira vinnsluminni og orðin rosa sæt og fín. ég elska hana :haha:

Samræmdu prófin eru búin!! það er best!

Óvissuferðin var á miðvikudaginn eftir stærðfræðiprófið. Ótrúlega gaman sko :D Ég persónulega ætlaði að vera ægilega dugleg á myndavélinni en ég tók enga mynd.. sem er bömmer því mér finnst vanta meiri myndir hérna inná!

Enduðum óvissuferðina í árskógskóla þar sem allir foreldrarnir og flestir kennararnir tóku á móti okkur með væmnasta klappi í heimi.. en mér fannst það samt krúttlegt af þeim :D Góður matur og bara gaman þarna!

Rusladagurinn á sandinum með frissa spar í gær klukkan fimm.. endaði nú bara með sandi í skóm og augum! en svo fengum við pylsu sem var ágætt :D

Í dag var svo starfs eitthvað hjá okkur og allir fóru til akureyrar.. ég fór á Greifann með Snorra og Sigga Marinó :D Vorum að vinna í eldhúsinu sem var fínt.. ég og siggi gerðum flottustu snittubrauð í heimi og röðuðum þeim líka svona agalega flott :D Svo bjuggum við okkur til pizzu og snorri missti sína á hvolf á gólfið, þar var pínu fyndið haha! Svo var pizzuhlaðborð með öllum krökkunum klukkan hálf tvö.

Kom heim, náði í amalíu, fór í hestbak og kom heim í tölvuna :D ljúft

-gullý

 


» 7 hafa sagt sína skoðun

08.05.2007 16:34:00 / gully

haalló :)

gott dæmi um það hérna fyrir neðan hvað sumir eru sérstakir hehe :lol:

Helgin hjá mér var bara nokkuð róleg, ekkert sérstakt í gangi sem er bara ágætt stundum!

Á föstudaginn var dönsku prófið og það var bara ótrúlega létt, kláraði það á rétt rúmum klukkutíma og fór þá bara í vinnuna og vann til klukkan fjögur. Fór svo aðeins í hesthúsið eftir vinnu og svo um kvöldið vorum bara ég og sjöfn ekki að gera neitt en svo kom ara og svo fórum við á rúntinn með kjartani :) labbaði svo heim frá sjöfn og mér var boðið á rúntinn með örugglega fertugum pólverjum en ég afþakkaði kurteisislega ;) Fór bara að sofa

 Á laugardaginn þurfti ég að fara í verklegan tíma í hesthúsinu klukkan ellefu og fór svo bara heim og gerði ekkert rosalega margt um daginn. Um kvöldið hitti ég sjöfn og arnar og við fórum aðeins á rúntinn með Magna og svo hittum við dagný og sigga og löbbuðum eitthvað smá og magni keyrði við hliðina haha..það var samt bara í smá stund. Klukkan hálf tólf fór ég að passa Fannar Inga sætasta :haha: og svo man ég bara voðalega lítið eftir því þegar ég labbaði heim um þrjú leitið, held ég hafi bara verið hálfsofandi ennþá:$:lol:

Sunnudagurinn fór ekki í neitt, var bara heima! Lærði eitthvað smá en það var ekki mikið.

Vaknaði klukkan hálf sex á mánudagsmorgunn og vann til tólf og fór í aukatíma í náttúrufræði klukkan eitt í þrjá klukkutíma! það var ekki gaman.

Náttúrufræðiprófið í morgun, mér fannst það dolldið erfitt.. spurning um fall? Fór að vinna í tvo og hálfan tíma og fór í aukatíma í stærðfræði.

síðasta samræmdaprófið á morgun! eftir það verður einhver ægileg óvissuferð:P Örugglega bara gaman :D

Eurovision á fimmtudaginn! vona að við komumst áfram annars verður laugardagurinn ekkert skemmtilegur :$ 

 

 

-gullý


» 6 hafa sagt sína skoðun

Síður: 1 2
�?�?�?©g ver�?�?�?° 16 �?�?�?¡ra :)
Niðurtalningu lokið!
Fyrir 1571 dögum